-Auglýsing-

Hjartarannsóknir

Þegar minnsti grunur vaknar um að ekki sé allt með felldu varðandi hjartað þá er betra að fara í fleiri rannsóknir en færri.iStock 000005519763 ExtraSmall
Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að menn og konur sem telja sig hafa farið í “tékk” hafi í rauninni ekki farið í raunverulega læknisskoðun með það fyrir augum að leiða í ljós hvort að viðkomandi sé með hjartasjúkdóm eða ekki. Þetta á t.d við um ógreindan kransæðasjúkdóm eða kransæðastíflu en hana getur verið erfitt að greina eins og dæmin sanna og ógreind getur hún leitt til hjartaáfalls og því skiptir tími miklu máli, hver mínúta telur ef hjartaáfall er annars vegar.
Þess má einnig geta að þriðjungur sjúklinga sem greinast með bráðakransæðastíflu eða fá hjartaáfall hafa ekki dæmigerðan brjóstverk þannig að það er aldrei of varlega farið.

Hér að neðan eru helstu rannsóknir sem framkvæmdar eru í tengslum við hjartað.

Hjartaensím: Efni sem losna frá hjartavöðvafrumum við súrefnisþurrð eins og verður við kransæðastíflu. Oftast eru mæld þrjú ensím, þ.e. CK og CKMB, einnig TRÓPONÍN.

Blóðfita: Heildarmagn kólesteróls er mælt, einnig sá hluti þess sem nefnist „góða kólesterólið,“ eðaHDL-kólesteról og „slæma kólesterólið“ eða LDL. Þríglyseríðar eru gjarnan mældir en sú blóðfita tengist oft offitu og sykursýki.

Blóðþynning: Þegar gefin eru blóðþynningarlyf, t.d. Kóvar, er mikilvægt að fylgjast með blóðþynningargildum(INR). Draga þarf blóðprufu reglulega og í kjölfarið eru gefin fyrirmæli um hæfilegan skammt blóðþynningarlyfja.

Hjartahormón (BNP): Gjarnan mælt þegar um hjartabilun er að ræða og skoðað í tengslum við einkenni og þróun sjúkdómsins.

- Auglýsing-

Hjartalínurit (EKG): Við ýmsa hjartasjúkdóma koma fram dæmigerðar breytingar á línuriti svo sem við kransæðastíflu og langvinnan háþrýsting, einnig greinast oft takttruflanir ef þær eru til staðar.

Ómskoðun af hjarta: Með hljóðbylgjum er unnt að fá fram mynd af hjartanu og meta þannig stærð hjartahólfa, þykkt hjartavöðvans og samdráttarhæfni. Einnig má sjá lokurnar og með sérstakri tækni meta hvort þær séu óþéttar eða hvort um þrengsli sé að ræða (Doppler). Hægt er að gera ómskoðun um vélinda og með því móti fást enn betri upplýsingar um starfssemi hjartans.

Tölvusneiðmynd af kransæðum: Þessari tækni er beitt í völdum tilfellum þegar grunur leikur á að um kransæðasjúkdóm geti verið að ræða. Hjartasérfræðingar geta í ljósi niðurstaðna metið þörf á frekari rannsóknum/meðferð. Segulómun: Í ákveðnum tilvikum er þessari tækni beitt til að meta stærð og staðsetningu hjartadreps. Einnig er þessari aðferð beitt í vaxandi mæli við greiningu meðfæddara hjartagalla, við segaleit o.fl.

Holter: Þessi rannsókn felst í síritun á hjartariti, oftast í sólarhring og gengur sjúklingurinn þá með lítið upptökutæki á sér. Þessi rannsókn er gerð þegar leitað er eftir hjartsláttartruflunum.

Gangráðsmæling: Með reglulegu millibili þurfa þeir sem hafa gangráð og/eða bjargráð að koma í eftirlit með starfssemi tækjanna þar sem m.a. er mældur líftími rafhlöðu og úrlestur úr hjartalínuriti og tölvu tækjanna.

Áreynslupróf/þolpróf: Ýmist er sjúklingurinn látinn ganga á þolbandi eða hjóla. Fylgst er með því hvort fram koma línuritsbreytingar á hjartariti og hvort sjúklingur fær einkenni sem bent gætu til kransæðasjúkdóms.

Hjartaþræðing: Kransæðamyndataka er gerð þannig að örmjó slanga er þrædd inn í náraslagæð og áfram upp til hjartans (vinstri þræðing). Með því að dæla skuggaefni í gegnum slönguna má ná fram röntgenkvikmynd af kransæðum og vinstri slegli. Ef um þrengsli er að ræða í kransæðum sjást þau yfirleitt mjög vel og unnt er að meta hversu mikil þau eru. Ef kransæðavíkkun er nauðsynleg er reynt að gera hana strax og kransæðamyndatakan er gerð þannig að önnur innlögn á sjúkrahús verður óþörf. Þegar þrætt er frá bláæð er farið um hægri hjartahólf og út í lungnaslagæðina. Það kallast hægri þræðing og með henni er metinn þrýstingur í blóðrásinni, súrefnismettun og einnig er unnt að mæla hversu miklu blóði hjartað dælir á hverri mínútu.
Þess má einnig geta að mögulegt er að þræða í gegn um úlnlið auk þess sem hjartaþræðingar eru mögulegar í gegn um æðar á hálsi.

Heimildir í þessum pistli koma úr ýmsum áttum en helstar þó frá vísindavefnum, landlækni.is, hjartaheill.is og hjarta.is

- Auglýsing -

Erlendir tenglar

Tenglar af chfpatient.com

Heartfailure tests

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-