
Tíðahvörf geta valdið mikilum líkamlegum og tilfinningalegum breytingum og haft mikil áhrif á hjartaheilsu sem fáir tala um.
Þegar estrogenmagnið minnkar eftir tíðahvörf hverfur mikilvæg vörn sem konur hafa notið árum saman. En hvað þýðir það fyrir hjartað?
Breytingar eftir tíðahvörf
Eftir tíðahvörf hækkar oft blóðþrýstingur og LDL-kólesteról (vonda kólesterólið), á meðan HDL (góða kólesterólið) lækkar. Þar með vex áhættan á hjarta- og æðasjúkdómum. Það ber þó að hafa í huga að konur virðast ekki jafn viðkvæmar fyrir háu kóleseróli og karlar. Margar konur finna líka fyrir aukinni fitusöfnun á kviðsvæði og hægari efnaskiptum. Þetta stuðlar allt að meiri líkum á æðakölkun og hjartaáföllum.
Nýlegar rannsóknir sýna að hjartaáhætta kvenna jafnast hratt út við karla eftir tíðahvörf. Þær sem fara seinna í tíðahvörf, til dæmis eftir fimmtugt, njóta lengur verndar estrogens og eru í minni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Estrogen og verndun hjartans
Estrogen hefur margvísleg verndandi áhrif á hjartað:
- Heldur kólesteróli í betra jafnvægi
- Stuðlar að víðari og sveigjanlegri æðum
- Dregur úr bólgum í æðakerfinu
- Hjálpar við að lækka blóðþrýsting
Þegar þessi áhrif hverfa eykst hættan á hjartaáföllum og öðrum hjartasjúkdómum.
Meiri áhætta á hjartasjúkdóma eftir tíðahvörf
Konur eftir tíðahvörf eru í aukinni hættu á hjartaáföllum, heilablóðfalli og hjartabilun. Þetta sést skýrt í tölfræði: hjartasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Vesturlöndum. Því er mikilvægt að fylgjast vel með hjartaheilsu eftir tíðahvörf vera í góðu eftirliti og ræða reglulega við lækni.
Hlutverk lífsstíls og hugsanleg hormónameðferð
Góðar venjur skipta öllu máli:
- Hollt, bólguminnkandi mataræði (miðjarðarhafsmataræði)
- Regluleg hreyfing
- Góður svefn
- Streitustjórnun
Hormónameðferð (HRT) getur einnig verið valkostur. Rannsóknir sýna að þegar meðferð hefst snemma eftir tíðahvörf, innan 10 ára, getur hún haft verndandi áhrif á hjarta og æðakerfi. Meðferðin er þó ekki fyrir alla og sérstaklega ekki konur með sögu um blóðtappa, ákveðin krabbamein eða alvarlegan hjartasjúkdóm. Ákvörðun um hormónameðferð þarf alltaf að taka í samráði við lækni.
Að lokum
Tíðahvörf eru áskorun fyrir hjartaheilsuna en engin ástæða til örvæntingar. Meðvitund, heilbrigður lífsstíll og opið samtal við lækni eru lykilatriði. Hormónameðferð getur verið nytsamlegt úrræði fyrir sumar konur, en mikilvægt er að velja leið sem hentar hverri og einni best.
Björn Ófeigs.
Heimildir
American College of Cardiology. (2024). Heart Health Declines Rapidly After Menopause
Johns Hopkins Medicine. Menopause and the Cardiovascular System
Verywell Health. (2023). How Does Estrogen Protect Against Heart Disease?
Cleveland Clinic. (2022). Menopausal Hormone Therapy and Heart Risk: Updated Guidance Is at Hand
North American Menopause Society (NAMS). Is Hormone Therapy Good for Heart Health?







































