
Við tölum mikið um mataræði og hreyfingu þegar heilsan er annars vegar en svefninn fær stundum minni athygli. Samt er hann grunnþáttur í því að hjartað geti sinnt sínu hlutverki.
Rannsóknir sýna að hvorki of stuttur né of mikill svefn gerir hjartanu gott, besta uppskriftin virðist vera 7–8 klukkustundir á nóttu.
Of lítill svefn – aukið álag
Fólk sem sefur reglulega minna en 6 klst á sólarhring er í meiri áhættu varðandi háþrýsting, hjartaáföll og hjartabilun. Líkaminn nær ekki að jafna sig og streituhormón eins og kortisól hækka. Það veldur stöðugu álagi á hjarta og æðakerfi sem getur á endanum aukið líkur á hjartasjúkdómum.
Of mikill svefn – líka hætta
Svefn yfir 9–10 klst á nóttu tengist einnig aukinni áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Of mikill svefn getur verið merki um undirliggjandi heilsuvanda en hann tengist líka verri stjórn á blóðsykri og hærri líkamsþyngdarstuðli. Það sýnir að jafnvægið skiptir mestu.
Besta jafnvægið
Svefn upp á 7–8 klst á nóttu hefur verið tengdur minni hættu á hjartaáföllum, betri blóðþrýstingi og jafnari blóðsykri. Þetta er í takt við ráðleggingar American Heart Association (Amerísku hjartasamtökin) sem setur svefn inn sem einn af „Life’s Essential 8“ þáttunum fyrir hjartaheilsu. Nýlegar niðurstöður frá European Society of Cardiology sýna meira að segja að það að bæta svefn upp um helgar geti dregið úr áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum um allt að 20%.
Að lokum
Svefninn er ekki munaður – hann er nauðsyn fyrir hjartað. Að stilla klukkuna á 7–8 tíma svefn á nóttu er einföld en áhrifarík leið til að styðja hjartað til langs tíma. Það er líklega sú besta uppskrift sem við getum fylgt.
Björn Ófeigs.
Heimildir
American Heart Association – Sleep and Heart Health
ESC – Catching up on sleep on weekends may lower heart disease risk by up to 20%
National Heart, Lung, and Blood Institute – Why Is Sleep Important?







































