-Auglýsing-

Hilma Hólm fékk 3 milljóna króna verðlaun

Hilma Hólm læknir fékk verðlaun úr Verðlaunasjóði í læknisfræði og skyldum greinum sem afhent voru á ársfundi Landspítala í Salnum í Kópavogi 5. maí 2011.
Sjóðurinn var stofnaður af Árna Kristinssyni og Þórði Harðarsyni sem báðir áttu langan feril sem yfirlæknar og prófessorar við Landspítalann og Háskóla Íslands.  Þetta er í fimmta skipti sem verðlaun eru veitt úr sjóðnum.  Þau nema nú þremur milljónum króna og eru þar með einhver stærstu verðlaun sem veitast íslenskum vísindamönnum.
Að þessu sinni bárust 8 tilnefningar og var undantekingarlaust um mjög hæfa vísindamenn að ræða úr ýmsum sviðum líffræði, læknisfræði og öðrum greinum heilbrigðisvísinda.

Umsögn um verðlaunahafann:

-Auglýsing-

Hilma Hólm lauk sérfræðinámi í lyflækningum og hjartalækningum við Baylor University í Houston og Emory University í Atlanta í Bandaríkjunum.  Eftir heimkomuna til Íslands árið 2008 réðst Hilma til starfa við Íslenska erfðagreiningu.  Þar hefur frami hennar verið undraskjótur.  Á mjög stuttum tíma lærði hún að takast á við sum flóknustu viðfangsefni erfðafræðinnar og tamdi sér strax vandaða vísindalega nálgun.  Hún er nú aðstoðarforstjóri klínískra rannsókna hjá Íslenskri erfðagreiningu.

- Auglýsing-

Uppgötvanir Hilmu og samstarfsmanna hennar hafa einkum snúist um erfðamynstur hjartasjúkdóma, ekki síst takttruflana og æðakölkunar.  Þrátt fyrir ungan aldur telst hún nú meðal fremstu vísindamanna heims á þessum sviðum. Því til sönnunar er ferilskrá Hilmu en þar eru taldar fram greinar sem birst hafa í virtustu vísindaritum, til dæmis má nefna fjórar greinar í Nature, auk birtinga í Lancet, Journal of the American College of Cardiology og European Heart Journal.

www.landspitali.is 05.05.2011

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-