-Auglýsing-

Grillaðar lambalundir með paprikusalsa

Það er fátt skemmtilegra en að læra nýjar aðferðir við matreiðslu og fá nýjar hugmyndir í matargerð. Það stefnir í langa helgi með hæfilega passlegu grillveðri og víst að ekki verður vöntun á eðaltilboðum í mörgum verslunum svo ekki er úr vegi að prófa eitthvað skemmtilegt.

Lambakjötið er okkur hjartfólgið hér á hjartalif.is enda um hreina náttúruafurð að ræða en í þessum þætti frá Kjarnafæði útbýr Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari grillaðar lambalundir með paprikusalsa. Uppskriftin er svo hér fyrir neðan myndskeiðið.

Fyrir 4

800 g lambalundir

½ dl olía

- Auglýsing-

1 tsk nýmulið BBQ & GRILL MESQUITE, eða annað gott grillkrydd

½ tsk nýmalaður pipar

2 tsk timjanlauf

2 tsk rósmarínnálar, smátt saxaðar

1-2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir

1 ½ tsk saltflögur

Allt sett í skál nema salt og blandað vel saman. Geymið í kæli í 2-24 klst. Strjúkið þá það mesta af olíunni af kjötinu og grillið í 1 ½ -2 mín á vel heitu grilli á hvorri hlið. Saltið.

Paprikusalsa

- Auglýsing -

2 rauðar paprikur

1 gul paprika

Smjör- eða olíusprey

2 msk olía

1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar

1 tsk broddkúmen (cumin)

Salt og nýmalaður pipar

1 msk oreganó, gróft saxað eða ½ tsk þurrkað

2 msk kóriander, gróft saxað

½ tsk chilliflögur

1 msk edik

1 msk sítrónusafi

1 msk fínt rifinn sítrónubörkur

2 msk hlyn síróp

Spreyið paprikurnar með smjörspreyi og grillið við mikinn hita í 5-7 mín eða þar til paprikurnar eru orðnar alveg svartar. Setjið þá paprikurnar í plastpoka í 5 mín. Skolið þá allt brennda hýðið af undir köldu rennandi vatni. Kjarnhreinsið paprikurnar og skerið í sneiðar.

Hitið 2 msk af olíu á pönnu og kraumið laukinn í 2 mín án þess að brúna. Bætið þá restinni sem er í uppskriftinni á pönnuna og kraumið í 2 mín.

Berið lundirnar fram með paprikusalsanu og t.d. grilluðum kartöflum, grænmeti og salati.

Góða skemmtun og verði ykkur að góðu.

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-