-Auglýsing-

Gen gegn hjartasjúkdómum

Einn þriðji mannkyns virðist vera með gen sem getur komið í veg fyrir hjartasjúkdóma.

Rannsókn á tæplega 150 þúsund sjúkl­ingum sýndi að sérstök tegund af CEPT-geni getur aukið magns góðs HDL-kólesteróls í blóðinu, en þetta kemur frá á fréttavef BBC. Breskar og hollenskar rannsóknir sem birtar hafa verið í tímariti Bandarísku hjartasamtakana sýndu fimm prósent færri hjarta­áföll hjá fólki með þessi gen.

Sérfræðingar telja þessar niðurstöður gefa betri skilning á orsakasamhengi hjartasjúkdóma og ættu þær að auðvelda lyfjafyrirtækjum að finna lyf gegn þeim. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að hægt er að draga úr hjartasjúkdómum með því að hækka magn HDL-kólesteróls í blóðinu með lyfjum sem hafa áhrif á CEPT-genin.

Tilraun var gerð með þess háttar lyf árið 2006 en því hætt eftir að hjartasjúkdómar hjá þeim sem tóku lyfin jukust.

Vísindamenn eru þó enn á því að hægt sé að hafa áhrif á þessi gen með lyfjagjöf og þannig auka magn jákvæðs kólesteróls í blóðinu í von um að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma.

www.visir.is 24.07.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-