-Auglýsing-

Flestir greiði minna

BREYTT lyfjaverðlag mun bæði hafa í för með sér hækkanir og lækkanir fyrir neytendur. Einstaklingar sem hafa ekki verið með lyfjaskírteini fyrir maga- og þunglyndislyf koma til með að greiða talsvert minna. Þeir sem eru með lyfjaskírteini koma hins vegar til með að greiða 10% meira.

Lágmarksgreiðslur almennra greiðenda hækka úr 1.700 kr. í 1.900 og hámarkið úr 4.950 í 5.450 kr. Þá mun 30 daga afgreiðslutakmörkun vegna veirulyfja og mígrenilyfja til dæmis verða afnumin. Niðurgreidd lyf fyrir börn og atvinnulausa, frekari lækkun smásöluálagningar og lækkun heildsöluverðs er meginatriði í reglugerð sem heilbrigðisráðherra kynnti í gær og miðar að því að lækka lyfjakostnað ríkisins um einn milljarð.

Útboðin skuldbinda spítalann
Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartadeild Landspítalans, segir sjálfsagt að skoða alla möguleika varðandi blóðfitulækkandi lyf. „Það gera sér allir grein fyrir að það þarf að leita allra leiða til að spara og hagræða.“

Landspítalinn sé skuldbundinn til að hafa útboð og taka hagstæðustu lyfin sem spítalanum bjóðast. Það séu hins vegar ekki alltaf ódýrustu lyfin úti í þjóðfélaginu. Yfir þetta verði farið á næstu vikum. „Það verður meginmarkmið hjá okkur áfram að nota bestu lyf sem við teljum að nái sama árangri.“ Litið sé til Norðurlandanna í þessu sambandi, en skoða þurfi þó hvern lyfjaflokk fyrir sig. Sú staða geti því vissulega komið upp að sjúklingur sé á einu lyfi á meðan á sjúkrahúsdvöl stendur og fái svo annað lyf er út er komið.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Morgunblaðið 16.02.2009

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-