-Auglýsing-

Fisk í matinn-Fasagna

Það þekkja allir Lasagna en Fasagna tekur þetta á næsta level með aldeilis frábæru tvisti þar sem bleikja og þorskur leika stórt hlutverk.

Ef þú hefur ekki prófað Fasagna þá er ekki seinna vænna.

HRÁEFNI

Uppskrift fyrir tvo

200 g bleikja
160 g þorskur100 g salt 
100 g sykur 
5 g dillfræ 
5 g fennelfræ
5 g saxað dill100 g rifinn ostur
60 g rifinn cheddar ostur
100 g tómatsalsa
60 g ricotta ostur
30 g smátt skorinn graslaukur
Lasagne plötur
Steikt zucchini (2 zucchini, olía, salt og pipar)

AÐFERÐ

Fiskur
  • Útbúið kryddlög úr salti, sykri, dillfræjum, fennelfræjum og dilli.
  • Skerið fisk í strimla og veltið upp úr kryddlegi.
  • Grafið í 15 mín. í kæli.
  • Skolið í köldu vatni og þerrið.
Zucchini
  • Skerið fyrst langsum og svo til helminga.
  • Steikið á báðum hliðum með olíu, salti og pipar þar til gullinbrúnt.
Fasagne
  • Setjið zucchini í botn á eldföstu móti.
  • Því næst fer ricotta ostur, graslaukur, ostur og cheddar.
  • Setjið fiskinn ofan á ásamt tómatsalsa, ricotta, graslauk og lasagne plötu.
  • Þetta er endurtekið tvisvar til viðbótar.
  • Að lokum er settur ostur, cheddar, ricotta og tómatsalsa.
  • Bakið á 180°C í 40 mín.

Berið fram með salati, brauði og rifnum parmesan osti.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-