-Auglýsing-

Bráð áhrif gosösku á heilsufar

Um þessar mundir berst mikil aska frá eldgosi í  Eyjafjallajökli. Askan er samsett úr ögnum af ýmsum stærðum. Um fjórðungur af ögnunum eru það smáar (< 10 míkron) að þær geta borist niður í lungun. Vindátt og aðrar aðstæður ráða því hvar askan fellur. Efnagreining Jarðvísindastofnunar á öskunni fyrsta sólarhringinn leiddi í ljós að flúorinnihald í þurri ösku var um 25 mg/kg. Öskulag sem er 1 cm að þykkt samsvarar um milligrömmum flúors á fermetra sem þýðir veruleg hætta fyrir búpening. Annað helsta efnið sem mældist í öskunni var kísilsýra (SiO2). Búast má við mengaðra öskufalli ef gosmökkurinn er þurr.

Gosaska getur haft bráð áhrif á fólk en helstu einkenni eru frá:

Öndunarfærum:

  • Nefrennsli og erting í nefi
  • Særindi í hálsi og hósti
  • Fólk sem þjáist af hjarta- og lungnasjúkdómum getur fengið versnandi einkenni af undirliggjandi sjúkdómum sem vara í marga daga og lýsa sér í hósta, uppgangi og öndunarerfiðleikum

Augum:

 Helstu einkenni eru:

  • Tilfinning um aðskotahlut
  • Augnsærindi, kláði, blóðhlaupin augu
  • Útferð og tárarennsli
  • Skrámur á sjónhimnu
  • Bráð augnbólga, ljósfælni
  • Gosaska er sértaklega varasöm ef augnlinsur eru notaðar

Húð:

  • Erting, sviði, roði og kláði í húð, einkum ef askan er súr.


Ráðleggingar til fólks á svæðum þar sem öskufalls gætir:

- Auglýsing-
  • Nota öndunarfæragrímur utanhúss. Æskilegt að nota hlífðarföt.
  • Séu öndunarfæragrímur ekki tiltækar má nota vasaklút eða annan klæðnað sem heldur stærri ögnum frá.
  • Ráðlagt að nota hlífðargleraugu
  • Börn og fullorðnir með hjarta- og öndunarfærasjúkdóma skyldu halda sig innanhúss
  • Forðast að not augnlinsur

Sóttvarnalæknir
Landspítali
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-