Það má segja að hann láti hjartað ráða í hvert skipti sem hann mundar myndavélina og okkur þykir vænt um að honum verði hugsað til okkar.
Simbi í Hafnarbúðinni á Ísafirði er engum líkur og á nýjustu myndinni hans má ljóst vera að hjartalíf.is liggur nærri hans hjarta og það ekki í fyrsta skipti.
Simbi er búinn að raka á sér bringuna og þar blasir við þetta líka fína hjarta. Það vita það allir sem þekkja Simba að þar fer maður með sannkallað risa-gullhjarta og leitun að öðru eins.
Eins og hann segir sjálfur um mynd dagsins.
„Afrakstur dagsins hjá Kallinum, eða öllu heldur af-rakstur. Já hann elskar sjálfan sig af öllu hjarta, og er svo hjartalif.is.
Þetta var hjartnæmt.“
Takk hjartanlega Simbi fyrir að vera sá sem þú ert.
Hér fyrir neðan eru svo nokkrar myndir frá kappanum.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Simbi étur það sem úti frýs.
Simbi hugsar út fyrir ramman
Simbi slettir úr klaufunum
Svo minnum við að sjálfsögðu á Fésbókarsíðuna hans https://www.facebook.com/SimbiIHafnarbudinniIsafirdi