Tékkar syrgja nú Jakub Halik, 38 ára gamlan slökkviliðsmann sem er fyrsti maðurinn til að lifa án hjarta í sex mánuði. Hann lést úr nýrna- og lifrarbilun.
Hjarta Haliks var fjarlægt í apríl vegna krabbameins. En aldrei tókst að finna nýtt hjarta til að græða í hann.
-Auglýsing-
Svörtum fánum var flaggað við slökkviliðsstöðvar í Tékklandi í dag.
„Við gerðum allt sem við gátum til að reyna að bjarga lífi hans,“ segir hjartalæknirinn sem meðhöndlaði Halik en hann lést á laugardagsmorguninn.
- Auglýsing-
„Hann starfaði við það að bjarga lífum annarra en okkur tókst ekki að bjarga lífi hans.“
Fyrirsögn eins dagsblaðsins í dag var: Maður án hjarta hafði stórt hjarta.“
www.mbl.is 18.10.2012
-Auglýsing-