-Auglýsing-

Skorið niður um 1,3 milljarða

Niðurskurður til sjúkrahúsa verður 1,3 milljarðar á næsta ári en ekki 3 milljarðar eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Þetta sagði Guðbjartur Hannesson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, eftir ríkisstjórnarfund í dag. Engin stofnun verður skert um meira en 12%.

Upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu að framlög til heilbrigðismála yrðu lækkuð um 4,7 milljarða, en þar af átti að lækka útgjöld til heilbrigðisstofnana, annarra en Landspítala og sjúkrahússins á Akureyri, um þrjá milljarða.

-Auglýsing-

Guðbjartur sagði að fjárlaganefnd væri að fara yfir fjárlögin í heild þar sem m.a. væri tekið tillit til nýrrar hagspár Hagstofunnar. Ekki hefði verið gerðar tillögur um að skera framlög til annarra stofnana í staðinn.

Guðbjartur sagði að búið væri að fara yfir rekstur allra stofnana upp á nýtt með kerfisbundnum hætti. Forstöðumenn stofnana hefðu komið fram með sínar hugmyndir.  „Það var farið yfir þetta með heildstæðum hætti og gerðar nýjar tillögur miðað við það.“

- Auglýsing-

Guðbjartur sagðist gera sér vonir um að það yrði meiri sátt um þessar tillögur en tillögurnar sem voru í frumvarpinu. „Allur þessi niðurskurður er erfiður, en það munar mjög miklu á þessum tillögum og frumvarpinu. Við erum að lækka niðurskurðinn um meira en helming. Í fyrri tillögum var gert mest ráð fyrir 40% niðurskurði, en nú verður engin skert um meira en 12%.“

Guðbjartur sagði að það væri verkefni forstöðumanna að vinna úr þessum niðurskurði, en hann sagðist ekki geta útilokað að grípa verði til uppsagna til að ná 1,3 milljarða sparnaði.

- Auglýsing -

www.mbl.is 26.11.2010

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-