Sunnudaginn 22. febrúar kl. 13-16 verður opin dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem átaksverkefninu GoRed fyrir konur á Íslandi, verður ýtt úr vör.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna.
GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2006. Verndari átaksins á Íslandi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.
Af hverju GoRed
- Konur og heilbrigðisfagfólk eru ekki meðvituð um áhættu hjarta- og æðasjúkdóma.
- Jafnmargar konur og karlar látast árlega af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
- Einkenni sjúkdómsins eru oftar óljósari hjá konum en körlum þannig að greiningarferli og áhættumat vegna hjarta- og æðasjúkdóma tefst oft.
Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma
- Aldur
- Reykingar
- Sykursýki
- Blóðfituröskun
- Háþrýstingur
- Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
- Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita;
- Offita (BMI>30)
- Hreyfingarleysi
Einkenni hjarta- og heilaáfalla – Konur eru öðruvísi:
Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
- Óútskýrðan slappleika eða þreytu
- Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
- Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
- Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
- Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
- Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu
- Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar
Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni heilaáfalls:
- Öndunarerfiðleika
- Ógleði og/eða uppköst
- Bakverk og/eða verk í kjálka
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaáfalls:
- Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
- Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
- Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
- Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
- Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
- Yfirlið eða meðvitundarleysi
Við vonumst til að þú sjáir þér fært að taka þátt í GoRed fyrir konur átakinu með okkur.
Ekki bíða til morguns – hugsaðu um hjartað þitt í dag!