„Við værum búin að redda þessu ef við værum bara ein að berjast í þessu en við þurfum að kljást við lítið batterí í Brussel,” sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra um opnun lyfjamarkaðarins innan evrópska efnahagssvæðisins.
Guðlaugur Þór segir að innan EES hafi menn tekið mark á gagnrýni hans hvað varðar hömlur á lyfjamarkaði innan svæðisins sem kemur sér ákaflega illa fyrir lítil markaðssvæði á borð við Ísland. Skýrði ráðherrann frá því að í Brussel sé ferlið til að breyta regluverkinu hafið.
Heilbrigðisráðherra segist vera búinn að koma á tilraunaverkefni um sameiginlegan lyfjamarkað á Norðurlöndum og er þegar hafið samstarf við Svía sem er farið að skila umtalsverðum fjölda lyfja inn á íslenskan lyfjamarkað.
„Markmiðið er að koma á samnorrænum markaði,” sagði ráðherra á hádegisverðarfundi í Valhöll í Reykjavík fyrir skömmu.
www.mbl.is 17.09.2008