Landlæknisembættið hefur gefið út ábendingar um notkun fjölsneiða tölvusneiðmynda af kransæðum. Ábendingarnar eru unnar af Ragnari Danielsen hjartalækni og Sigurði Helgasyni lækni og ritstjóra klínískra leiðbeininga hjá Landlæknisembættinu, en ráðgjafar þeirra voru læknarnir Birna Jónsdóttir, Eyþór Björgvinsson, Gestur Þorgeirsson, Gunnar Þór Gunnarsson, og Torfi F. Jónasson auk Guðlaugs Einarssonar geislafræðings hjá Geislavörnum ríkisins.
Um er að ræða tímamótaverk þar sem lagt er mat á æskilega notkun á nýrri heilbrigðistækni hér á landi. Íslendingar eru þekktir fyrir að taka fljótt við nýjungum, sem er að mörgu leyti kostur. Hins vegar verður að taka öllum nýjungum með ákveðinni gagnrýni og huga að kostnaði miðað við þann ábata sem vænta má af tækninni.
Einnig er fjallað um aukaverkanir, en rannsóknin er ekki með öllu hættulaus, einkum með tilliti til þeirrar geislunar sem hún veldur. Hjá rétt völdum sjúklingum getur aðferðin hins vegar greint sjúkdóm, sem annars hefði ekki greinst eða sparað sjúklingi að fara í kransæðaþræðingu, sem er meira inngrip.
Matthías Halldórsson
aðstoðarlandlæknir
www.landlaeknir.is 13.11.2007