-Auglýsing-

Mýtur, ályktanir og staðreyndir um offitu

FitaMargt sem við teljum vera staðreyndir um offitu er ekki alltaf vísindalega sannað heldur eru sumar þessara “staðreynda” stundum einfaldlega bara mýtur eða goðsagnir.

Í tímaritinu The New England Journal of Medicine birtist samantekt frá rannsóknarstofnun um offitu í Háskólanum í Alabama þar sem alls kyns atriði tengd offitu og þyngdartapi voru tekin saman og sannreynt hvort það væru til haldbær vísindaleg gögn á bakvið þau eða ekki.

Rannsakendur flokkuðu atriðin upp í mýtur, ályktanir og staðreyndir:
Mýtur (sannað sem rangt)
  • Smáar breytingar í inntöku eða eyðslu á orku getur leitt til langtíma þyngdartaps.
    • Staðreynd = samkvæmt rannsóknum verður þyngdartapið ekki jafn mikið og það er sagt verða við litlar breytingar
  • Að setja upp raunhæf markmið er betra en of stór.
    • Staðreynd = fólk sem setur sér metnaðarfull markmið á alveg jafn miklar líkur á að léttast eins og einstaklingar sem setja sér lítil og raunhæf markmið.
  • Fólk sem léttist hratt frekar en hægt mun ekki léttast jafnmikið til langtíma.
  • Það er mikilvægt að vera andlega undirbúin(n) til að léttast annars tekst það aldrei.
  • Brjóstagjöf er verndandi gegn offitu síðar á ævinni.
  • Einstaklingar brenna um 100-300 hitaeiningum við kynlífsathafnir.
    • Staðreynd = brennslan er einungis 21 hitaeining.
Ályktanir (ekki sannað sem rétt eða rangt)
  • Að borða morgunmat reglulega er verndandi gegn offitu.
    • Staðreynd = fólk sem borðar morgunmat á það til að vera grennra en fólk sem borðar ekki morgunmat.
  • Snemma í barnæsku er tíminn sem við lærum að hreyfa okkur og matarvenjur okkar sem hafa áhrif á okkur út lífið.
  • Að borða meira af ávöxtum og grænmeti hefur áhrif á þyngdartap, hvort sem einhverjar aðrar lífstílsbreytingar eru gerðar í leiðinni eða ekki.
    • Staðreynd = ávextir og grænmeti hafa samt marga heilsusamlega kosti og eru stútfull af nauðsynlegum næringarefnum þrátt fyrir að þau hafi kannski ekki bein áhrif á þyngdartap.
  • Jójó megranir (þegar þyngd fer upp og niður) eru tengdar við hækkandi líkur á dánartíðni.
  • Að snarla milli mála stuðlar að þyngdaraukningu og offitu.
  • Umhverfi þar sem bætt er við hlaupa- og hjólastígum, gangstéttum og görðum hefur minnkandi áhrif á offitu.
Staðreyndir (sannað sem rétt)
  • Þótt erfðir spila stóru hlutverki, þá eru erfðaþættir ekki okkar örlög. Lífstílsbreytingar geta haft áhrif.
  • Megranir hjálpa til með þyngdartap en virkar ekki til langtíma.
  • Aukin hreyfing eykur heilsu, hver sem líkamsþyngd einstaklingsins er.
  • Hreyfing getur hjálpað með þyngdartap.
  • Fyrir of þung börn, þá virkar best prógrömm sem foreldrarnir taka þátt.
  • Sum lyf hjálpa til með þyngdartap.
  • Hjáveituaðgerðir vegna offitu geta leitt til langtíma þyngartaps, minnkað líkur á sykursýki og lækkað dánartíðni.

Pistillin kemur úr smiðju Hrundar Valgeirdóttur næringarfræðings MSc sem heldur úti heilsublogginu www.naering.com

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-