-Auglýsing-

Hjartaheill gefur hjartastuðtæki

Sigurlaug Hermannsdóttir, formaður Hjartaheilla á Norðurlandi vestra, kom færandi hendi á dvalarheimilið Sæborg á Skagaströnd nýverið. Erindið var að afhenda heimilinu hjartastuðtæki að gjöf frá Hjartaheill til minningar um Björgvin Brynjólfsson sem lést í vetur en var heimilismaður á Sæborg. Björgvin var lengi einn af ötulustu forsvarsmönnum félagsins á svæðinu.

Stuðtækið, sem félagið gaf, er meðfærilegt og leiðbeinir þeim sem það notar með því að tala við hann á íslensku. Ekkert svona tæki var til á Sæborg né á heilsugæslunni á Skagaströnd en það mun verða notað þar ef með þarf því heilsugæslan og dvalarheimilið eru sambyggð og því auðvelt að nálgast tækið í neyðartilvikum.

Hjartaheill hefur á undanförnum árum gefið hjartastuðtæki í ýmsar stofnanir á Norðurlandi vestra s.s. heilbrigðisstofnanirnar á Hvammstanga, Blönduósi og Siglufirði og einnig í sjúkrabíla og íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Má segja að félaginu verði mikið úr félagsgjöldum þeirra 120 félaga sem eru í svæðisdeildinni því svona tæki mun kosta um 250 þúsund krónur.

Það var Fríða Pálmadóttir forstöðumaður Sæborgar sem veitti tækinu viðtöku og þakkaði hún gjöfina sem hún sagði að tryggði öryggi heimilismanna betur en áður hefur verið. Kom fram í máli Fríðu að hún hefði verið að skoða auglýsingu um svona tæki fyrir nokkrum dögum og verið að láta sig dreyma um að geta einhvern tíma keypt eitt slíkt. Sagðist hún þekkja dæmi um að slík tæki hefðu bjargað mannslífum.

Eftir Ólaf Bernódusson Skagaströnd

Morgunblaðið 10.07.2007

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-