-Auglýsing-

Hjartagátt – styrktartónleikar

HjartagáttÞeir sem þekkja til hjartamála á Íslandi efast ekki um mikilvægi Hjartagáttar Landspítalans þegar kemur að bráðaþjónustu vegna einkenna frá hjarta og æðakerfi.

Samt er það svo að mikill fjöldi fólks veit ekki um tilvist deildarinnar á Hringbraut og er það slæmt ef sú staða kemur upp að leita þarf aðstoðar vegna einkenna frá hjarta. Bráðamóttakan í Fossvogi er almenn bráðamóttaka en Hjartagáttin er sérhæfð og öflug þjónusta sem beint er sérstaklega að vandamálum hjarta og æðakerfis.

Hjartagáttin er opin allan sólahringinn í miðri viku en vegna niðurskurðar er sá galli á gjöf Njarðar að deildin er lokuð frá hádegi á föstudögum til klukkan 8 á mánudagsmorgnum. Þetta er afar slæmt og þarfnast úrbóta sem allra allra fyrst.

Á Hjartagátt er unnið mikið og gott starf af góðu starfsfólki. Þar er þó of mikið álag og niðurskurður hefur sneitt af tækifæri til nauðsynlegrar endurnýjunar tækja og til almenns reksturs.

Af þessu tilefni viljum við hér á hjartalíf fá ykkur með í að leggja Hjartagáttinni lið. Við viljum vekja athygli á tilvist þessarar bráðnauðsynlegu bráðavaktar og afla fjár þeim til stuðnings. Þetta gerum við með því að efna til stórtónleika í Gamla bíói þann 27. maí næstkomandi klukkan 20:00 undir yfirskriftinni HJARTAGÁTT – STYRKTARTÓNLEIKAR.

Hjartagátt – styrktartónleikar eru bráðskemmtilegir og hjartastyrkjandi tónleikar þar sem margir af okkar helstu listamönnum koma fram og stuðla þar með að bættri aðstöðu sjúklinga og starfsfólks deildarinnar.

- Auglýsing-

Meðal annarra sem koma fram á tónleikunum eru: Bubbi Morthens, Ellen Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson, Geir Ólafsson, Andrea Gylfadóttir, Jakob Frímann Magnússon, Berglind Björk Jónasdóttir og hljómsveitin Thin Jim með Páli Rósinkranz.

Kynnir verður Guðmundur Steingrímsson harmonikkuleikari

Tónleikarnir eru hugarsmíð okkar í Hjartalíf og Jökuls í hljómsveitinni Thin Jim en Ingibjörg Gréta Gísladóttir, rigga.is hefur komið með okkur að skipulagi og framkvæmd. Það er von okkar sem að þessu framtaki stöndum að svo vel takist til að um árlegan viðburð verði að ræða.

Við hvetjum þig til að leggja okkur lið, njóta góðrar tónlistar og láta gott af þér leiða.

Aðgöngumiði á tónleikana kostar aðeins 3.900 krónur og fæst á miði.is en þeir sem ekki sjá sér fært að mæta geta lagt söfnuninni lið með því að hringja í söfnunarsímanúmer sem verða kynnt hér á síðunni innan skamms.

Endilega kíkið á viðburðin á Facebook og hjálpið okkur að deila honum áfram. 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-