-Auglýsing-

„Hjartað hökti af stað eins og díselvél á köldum vetrarmorgni“

SundlaugÞað er mikl hetjudáð að endurlífga manneskju og í þessu tilfelli erum við minnt á mikilvægi þess að bregðast rétt við ef við lendum í svona aðstæðum. Hægt er að nálgast góðar leiðbeininingar um hjartastopp- endurlífgun hér á hjartalif.is.

Litháinn Grazvydas Lepikas vann hetjudáð um síðustu helgi í Suðurbæjarlaug Hafnarfjarðar þegar honum tókst að endurlífga mann sem hafði legið meðvitundarlaus í sundlauginni. Vísir greindi frá því á mánudag að Gunnar Áki Kjartansson hefði komið manninum til bjargar. Gunnar varð var við mann án meðvitundar í lauginni, þreif hann upp á sundlaugarbakkann og kallaði eftir hjálp.

Lepikas brást skjótt við þegar hann sá í hvað stefndi. „Þegar ég kom að manninum þá var hann blár í kringum varirnar. Fólk stóð í kringum manninn og einn var að athuga púlsinn á honum. Það var örvænting í hópnum. Það var kona byrjuð að framkvæma skyndihjálp en hendur hennar voru ekki á réttum stað þannig að ég greip inn í,“ segir Lepikas í samtali við Vísi.

Maðurinn var orðinn mjög bláleitur

„Ég er menntaður dýralæknir og vissi að hver einasta sekúnda skipti sköpum. Ég setti höfuð mannsins í rétta stöðu og hóf að blása. Ég hnoðaði manninn til skiptis. Ég veit ekki hversu lengi ég gerði þetta en þetta virtist líða sem heil eilífð. Ég var orðinn mjög þreyttur og kallaði eftir hjálp frá fleirum þar sem maðurinn var orðinn mjög blár. Við vorum að missa hann. Annar strákur áttaði sig á því að ég væri að biðja hann um að blása í manninn þó ég kynni ekki íslensku. Það var mun auðveldara eftir að við vorum tveir að vinna saman. Allt í einu gerðist kraftaverk sem ég á erfitt með að lýsa. Ég fann að hjartað fór að slá á ný. Hjartað hökti af stað eins og díselvél á köldum vetrarmorgni. Mjög hægt fór hjarta mannsins að slá á ný og hann náði andanum. Okkur hafði tekist að bjarga honum.“

Eftir að hjarta mannsins fór að slá á ný þá kastaði hann upp og komst til meðvitundar. Lepikas og Gunnari Áka hafði í sameiningu tekist að bjarga manninum. Lífgunartilraunir Lepikas reyndu mikið á hann og var hann örmagna af þreyttu. Hann hélt til búningsherbergja og sat lengi á sturtugólfinu og hvíldi sig. Lögreglan náði tali af honum skömmu síðar en Lepikas var of þreyttur og stressaður til að gefa skýrslu. Lögreglan bauðst til að aðstoða Lepikas við að komast heim sem hann afþakkaði og hélt heim á leið ásamt eiginkonu sinni. Þau áttu erfitt með að festa svefn um kvöldið eftir ótrúlegan dag.

- Auglýsing-

Treystir sér ekki í sundlaugina

Lepikas fer á hverjum degi ásamt eiginkonu sinni í líkamsræktarstöðin Actic sem er staðsett í Suðurbæjarlaug. Þau skella sér svo í laugina í kjölfarið. Á mánudag fóru þau í líkamsrækt en þegar kom að því að fara í sundlaugina átti Lepikas erfitt um vik.

„Ég opnaði dyrnar að sundlauginni en lokaði henni strax aftur. Ég gat ekki stigið inn – ég er ekki tilbúinn til að fara aftur í laugina. Það eina sem skiptir þó máli er að það sé í lagi með manninn.“

Lepikas er 43 ára gamall og hefur búið hér á landi í átta ár. Hann er búsettur í Hafnarfirði ásamt eiginkonu sinni. Lepikas starfar hjá Mjólku-Vogabær.

Viðtalið birtist á visir.is

Tengt efni:

Hjartastopp – endurlífgun 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-