
Yfirleitt hugsum við um heyrn og hjarta sem tvö alveg aðskilin kerfi – annað snýst um hljóð, hitt um blóð.
En rannsóknir sýna að tengslin eru raunveruleg. Ef þú ert með skerta heyrn eða hjarta- og æðasjúkdóm gæti verið kominn tími til að hugsa hvort þessi tvö kerfi spili ekki saman oftar en við gerum okkur grein fyrir.
Hver eru tengslin?
Sameiginlegir áhættuþættir
Rannsóknir hafa sýnt að einstaklingar með háþrýsting, sykursýki eða reykingasögu sem eru allt þekktir áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru mun líklegri til að glíma við heyrnarskerðingu. Bandarísk rannsókn leiddi í ljós að þeir sem voru með tvo eða fleiri slíka áhættuþætti voru með marktækt meiri líkur á heyrnartapi. Metagreining í PubMed sýndi einnig sterk tengsl milli heyrnarskerðingar og bæði kransæðasjúkdóma og heilablóðfalls.
Blóðflæði og æðakerfi innra eyrans
Innra eyrað þarf stöðugt og fíngert blóðflæði. Ef æðarnar skemmast vegna háþrýstings eða æðakölkunar getur blóðflæði minnkað og haft áhrif á heyrnina.
Geta heyrnartæki haft áhrif?
Heyrnarskerðing getur aukið streitu, félagslega einangrun og jafnvel þreytu í samskiptum sem eru allt þættir sem geta hækkað blóðþrýsting og púls. Rannsóknir sýna að þeir sem nota heyrnartæki upplifa minni streitu, betri svefn og sterkari félagslega virkni, sem allt hefur jákvæð áhrif á hjartaheilsu.
Beinar niðurstöður varðandi hjartabilun og háþrýsting liggja ekki fyrir en þó líklegt að betri heyrn og minni streita geti haft jákvæð áhrif á hjartaheilsu. Það er því ekki bara spurning um að heyra betur, heldur bæta lífsgæði.
Að lokum
Þegar við hugsum um hjartaheilsu er mikilvægt að horfa á meira en á blóðþrýsting og kólesteról. Heyrnarskerðing getur verið dulin vísbending um ástand æðakerfisins og um leið tækifæri til að grípa fyrr inn í. Að halda heyrninni í lagi og nota heyrnatæki ef þörf er á getur því verið hluti af því að bæta lífsgæði og hjartaheilsu til lengri tíma.
Heimildir
Relationship of cardiovascular disease risk and hearing loss in a clinical population – PMC
Cardiovascular risk factors and hearing loss – The HUNT study, PubMed
Association Between Hearing Loss and Cardiovascular Disease – PubMed
Hearing and vision loss may increase risk of heart disease and stroke – American Heart Association
Association between hearing aid use and mortality in adults with hearing loss in the USA. The Lancet








































