-Auglýsing-

Hækkuð gildi stórauka líkur á ótímabærum dauða.

Þetta er áminning um hvað það skiptir miklu máli að þekkja gildin sín og fylgjast með þeim.

Milljónir einstaklinga á miðjum aldri sem eru í yfirþyngd og með lítillega hækkaðan blóðþrýsting, kólesteról eða blóðsykur eru í þriðjungi meiri hættu að deyja ótímabærum dauða að því er fram kemur í viðamikilli rannsókn.

Þá eru þeir 35 prósent líklegri til að fá hjartaáfall og heilablóðfall og upplifa þau tveimur árum fyrr en jafnaldrar þeirra eftir því sem fram kemur í frétt á visi.is.

Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem verður kynnt á ársfundi European Society of Cardiology. Þykja þær enn frekari sönnun alvarleika offituvandans sem steðjar að heimsbyggðinni.

Samkvæmt umfjöllun Guardian er áætlað að allt að 31 prósent íbúa jarðar þjáist af efnaskiptavillu (e. metabolic syndrome), jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því.

Efnaskiptavilla er hugtak sem er notað til að lýsa því ástandi þegar einstaklingur er greindur með þrjá áhættuþætti en meðal þeirra má nefna offitu, mikla kviðfitu, háan blóðþrýsting, hátt kólesteról og háan blóðsykur.

Dr. Lena Lönneberg við Västmanland-sjúkrahúsið í Västerås í Svíþjóð fór fyrir rannsókninni og segir margt fólk á fimmtugs- og sextugsaldri vera með aukna kviðfitu og örlítið hækkuð blóðþrýstings-, kólesteról- og blóðsykursgildi. 

- Auglýsing-

Líðan þeirra sé hins vegar almennt góð og það ómeðvitað um aukna áhættu, sem leiði til þess að viðkomandi einstaklingar leita sér ekki læknisaðstoðar.

„Þetta ástand, efnaskiptavilla, er vaxandi vandamál í vestrænum samfélögum þar sem fólk er óafvitandi að fresta vandamálum þar til seinna í lífinu. Þetta er glatað tækifæri til að grípa inn í, áður en hjartaáföll og heilablóðföll eiga sér stað sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir,“ segir Lönneberg.

Rannsóknin náði til 34 þúsund einstaklinga á fimmtugs- og sextugsaldri. Hækkaður blóðþrýstingur reyndist alvarlegasti áhættuþátturinn, ekki síst meðal kvenna á fimmtugsaldri.

Sérfræðingar segja skilaboðin þau að fylgjast með umræddum gildum og grípa inn í. Þá sé hægt að grípa til alls konar forvarna, til að mynda að breyta matarræðinu, hreyfa sig reglulega og hætta reykingum. Ef lífstílsbreytingar dugi ekki til sé hægt að fá lyf til að draga úr áhættunni.

Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-