-Auglýsing-

Græna umslagið og greiðsluyfirlit

Fyrirkomulagi á upplýsingum um mánaðarlegar greiðslur til lífeyrisþega hefur verið breytt. Í stað mánaðarlegra greiðsluseðla verður lífeyrisþegum nú sent eitt ársyfirlit sem sýnir allar greiðslur og þær forsendur sem liggja að baki útreikningi á þeim yfir eitt ár.

Nú er þetta nýja yfirlit í fyrsta sinn sent að vori, en mun í framtíðinni verða sent í lok árs og gilda fyrir næsta almanaksár.

Ef upplýsingar um breyttar forsendur sem hafa áhrif á bótarétt eða fjárhæðir bóta berast Tryggingastofnun, verður sent út annað yfirlit.

-Auglýsing-

Greiðslur verða eftir sem áður lagðar inn á reikninga lífeyrisþega um hver mánaðamót þó ekki verði tilkynnt sérstaklega um hverja innborgun.

- Auglýsing-

Aukin rafræn þjónusta
Tryggingastofnun hefur markað sér þá stefnu að auka markvisst rafræna þjónustu við viðskiptavini sína. Mánaðarlegir greiðsluseðlar eru héðan í frá aðgengilegir á vef ríkiskattstjóra, www.skattur.is. Til að skoða þá þarf viðkomandi að nota sama veflykil og notaður er við framtalsgerð.

Mánaðarlegir seðlar
Samhliða útsendingu á árlegu greiðsluyfirliti verður hætt að senda út mánaðarlega greiðsluseðla, nema þess verði sérstaklega óskað. Þeir sem vilja eftir sem áður fá seðlana senda til sín í pósti geta sótt um það með því að hafa samband við starfsfólk þjónustumiðstöðvar, næsta umboðsmann eða senda póst á netfangið tr@tr.is.

Upplýsingasíða um græna umslagið

- Auglýsing -

Af vef Tryggingastofnunar

-Auglýsing-
-Auglýsing-
mjoll
mjoll
Mjöll er klínískur sálfræðingur og hjartamaki. Hún þekki hlutverk aðstandenda hjartasjúklings með hjartabilun vel.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-