-Auglýsing-

Fisk í matinn – Fnitzel

Fisk í matinn kynnir með stolti aldeilis frábæra útáfu af fiskrétti sem er sérlega hjartavænn. Fnitzel er málið á vindasömum degi.

HRÁEFNI

Uppskrift fyrir tvo

200 g ýsa/1 flak
200 g hveiti
5 egg, hrærð
250 g brauðraspur
Olía til steikingar
150 g smjör til steikingar
150 g skorinn laukur
2 msk. kapers
2 sítrónusneiðar
10 g smátt skorin steinselja

AÐFERÐ

Ýsufnitzel
  • Veltið fiskinum upp úr hveiti.
  • Leggið fiskinn ofan í eggjahræruna og því næst í brauðraspinn. Endurtakið.
  • Steikið á pönnu með olíu, lauk, salti og pipar í um 3 mín.
  • Bætið á olíu eftir þörfum.
  • Snúið fiskinum og bætið smjöri og kapers á pönnuna. 
  • Saltið og piprið eftir smekk.
  • Raðið lauknum ofan á fiskinn ásamt sítrónusneiðum og steinselju.
  • Klárið að elda á pönnu eða setjið í ofn á 180°C í u.þ.b. 5 mín. eða þangað til fiskur er gegnumsteiktur.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-