-Auglýsing-

Davíð O. Arnar er heiðursvísindamaður Landspítala 2020

Davíð O. Arnar heiðursvísindamaður

Davíð O. Arnar er heiðursvísindamaður Landspítala 2020 og hlýtur viðurkenninguna fyrir framúrskarandi framlag hans til vísinda á ferli sínum.

Heiðursvísindamaður Landspítala er útnefndur ár hvert og hefur vísindaráð Landspítala veg og vanda af útnefningunni. Eins og hefð er fyrir hélt heiðursvísindamaðurinn fyrirlestur um rannsóknir sínar að lokinni útnefningu, afhendingu heiðursskjals og heiðursverðlauna að upphæð 300 þúsund króna.  Verðlaunin voru afhent á Vísindum að hausti þann 7. október 2020,  uppskeruhátíð vísinda á Landspítala

Davíð lauk kandidatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið doktorsprófi frá sama skóla auk meistaraprófs í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann var við sérfræðinám við University of Iowa Hospitals and Clinics í Iowa City í Bandaríkjunum um sjö ára skeið og lauk þaðan sérfræðinámi í lyflækningum, hjartalækningum og raflífeðilsfræði hjartans. Hann hefur lokið bandarískum sérfræðiprófum í lyflækningum og hjartalækningum og hefur sérfræðiviðurkenningu hérlendis í lyflækningum, hjartasjúkdómum og heilbrigðisstjórnun.

Davíð hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu innan heilbrigðiskerfisins og er yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, gestaprófessor við læknadeild Háskóla Íslands og formaður Félags íslenskra lyflækna. Hann hefur komið talsvert að félags- og nefndarstörfum hjá Evrópusamtökum hjartalækna.

Megin áhugasvið Davíðs í vísindarannsóknum snýr að erfðafræði hjartsláttartruflana, sér í lagi gáttatifi, og nýtingu erfðaupplýsinga í heilbrigðisþjónustu. Davíð hefur unnið mjög náið með Íslenskri erfðagreiningu og hafa niðurstöður rannsókna þeirra vakið mikla athygli, birst í mjög virtum tímaritum og aukið skilning á grunnorsökum hjartsláttartruflana. Hafa rannsóknirnar meðal annars sýnt fram á mikilvægi stökkbreytinga í genum sem tjá samdráttarprótín hjartavöðvafruma í tilkomu gáttatifs. Hafa þessar uppgötvanir leitt til grundvallarbreytinga á hugmyndun um meingerð þessarar algengu hjartsláttatruflunar og gætu leitt af sér nýja nálgun í áhættumati og meðferð sjúkdómsins.
Einnig hefur Davíð unnið heilmikið að klínískum rannsóknum. Þar má nefna samstarfsverkefni með Hjartavernd á afleiðingum gáttatifs á heila, sér í lagi áhrif til skerðingar á vitrænni getu, minnkunar á heilablóðflæði og heilarúmmálsrýrnun. Davíð hefur mikinn áhuga á nýtingu snjalltækni til fjarvöktunar á einkennum og líðan hjartasjúklinga sem og til að efla fræðslu um mikilvægi lífstílsbreytinga. Davíð undirbýr nú rannsóknir á fýsileika þess að bæta við fjareftirliti og fræðslu með snjalltækni til viðbótar hefðbundinni meðferð við kransæðasjúkdómi, hjartabilun og gáttatifi í samstarfi við fyrirtækið Sidekick Health.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-