-Auglýsing-

Brýnt er að fjölga líffæragjöfum

Talsverð umfjöllun hefur verið um líffæragjafir í fjölmiðlum upp á síðkastið og er það fagnaðarefni því þessu mikilvæga málefni hefur verið of lítill gaumur gefinn. Í umræðunni að undanförnu hefur örlað á þeim misskilningi að Íslendingar séu tregari til að gefa líffæri en flestar aðrar þjóðir. Staðreyndin er sú að fjöldi líffæragjafa á Íslandi er svipaður og í mörgum Evrópulöndum ef undan eru skilin Spánn, Austurríki og Belgía sem eru öðrum löndum fremri á þessu sviði. Þegar við berum okkur saman við önnur lönd er gagnlegt að líta á fjölda líffæragjafa á milljón íbúa. Á árunum 2004-2006 var fjöldi líffæragjafa á Íslandi 13,1 á milljón íbúa á ári að meðaltali og er það meiri fjöldi en í Danmörku en aðeins minni en í Noregi og Svíþjóð. Það er hins vegar rétt sem fram hefur komið að líffæragjafir eru alltof fátíðar hér á landi og deilum við því vandamáli með flestum öðrum þjóðum. Íslensk rannsókn sýndi að 40% aðstandenda látinna einstaklinga höfnuðu líffæragjöf. Þetta háa hlutfall neitunar er svipað því sem þekkist meðal margra annarra þjóða.

Til þessa hefur verið unnt að mæta vel þörf íslenskra sjúklinga fyrir líffæraígræðslu, meðal annars vegna drjúgs framlags lifandi nýragjafa. Í framtíðinni má búast við aukinni þörf fyrir líffæri frá látnum gjöfum hér á landi. Því er brýnt að unnið verði að því að fjölga líffæragjöfum. Til að það megi takast þarf samstillt átak með áherslu á umræðu og fræðslu meðal almennings og þjálfun fagaðila sem gegna því erfiða hlutverki að óska eftir líffæragjöf. Einnig er mikilvægt að lögum um brottnám líffæra til ígræðslu verði breytt þannig að í stað ætlaðrar neitunar verði gert ráð fyrir ætluðu samþykki. Hér ættu að vera kjöraðstæður til að gera líffæragjöf að eðlilegum þætti tilverunnar þar sem íslenska þjóðin er fámenn, einsleit, vel upplýst og samheldin. Íslendingar búa við gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu sem býður upp á öll helstu meðferðarúrræði sem völ er á í baráttu við sjúkdóma, þar á meðal líffæraígræðslur. Þeir sem vilja þiggja ígræðslu líffæris þegar þörf krefur ættu jafnframt að vera reiðubúnir að gefa líffæri sín við andlát.

Höfundur er yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.

Fréttablaðið 17.07.2007

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-