-Auglýsing-

Bráðaþjónusta Hjartagáttar flytur í Fossvog.

Bráðaþjónusta Hjartagáttar flyst í Fossvog

Frá og með laugardeginum 1. desember 2018 verður bráðaþjónusta Hjartagáttar Landspítala staðsett á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Allt kapp verður lagt á að tryggja öryggi og góða þjónustu við hjartasjúklinga þar.

Mikilvægt er að fólk sem fær brjóstverki eða önnur alvarleg einkenni frá hjarta hringi þegar í stað á 112 og fái þar aðstoð við að meta hvort ástæða sé til þess að hringja á sjúkrabíl og fara þannig til Landspítala.

Flutningarnir eiga meðal annars erindi við sjúklinga sem:

  • leita sjálfir til Landspítala með bráð einkenni frá hjarta.
  • eru fluttir til Landspítala með sjúkrabíl með bráða brjóstverki og önnur hjartatengd vandamál.
  • leita til Landspítala samkvæmt tilvísun heilsugæslulækna eða vaktlækna utan spítalans.

Áfram verður rekin öflug dag- og göngudeildaþjónusta hjá Hjartagátt við Hringbraut. Það er einungis bráðaþjónustan sem flytur kl. 16:00 föstudaginn 30. nóvember. Bráðaþjónustan verður í fullri virkni í Fossvogi frá og með laugardeginum 1. desember.

FRÉTT // Bráðaþjónusta hjartagáttar flytur í Fossvog 30. nóvember

BRÁÐAÞJÓNUSTA HJARTAGÁTTAR FLYTUR Í FOSSVOG 30. NÓVEMBERFöstudaginn 30. nóvember kl. 16:00 verður bráðaþjónusta Hjartagáttar Landspítala flutt til bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Allt kapp verður lagt á að tryggja öryggi og góða þjónustu við hjartasjúklinga þar eftir flutningana frá Hringbraut.Flutningarnir eiga meðal annars erindi við sjúklinga sem: • leita sjálfir til Landspítala með bráð einkenni frá hjarta • eru fluttir til Landspítala með sjúkrabíl með bráða brjóstverki og önnur hjartatengd vandamál • leita til Landspítala samkvæmt tilvísun heilsugæslulækna eða vaktlækna utan spítalansMikilvægt er að fólk sem fær brjóstverki eða önnur alvarleg einkenni frá hjarta hringi þegar í stað á 112 og fái þar aðstoð við að meta hvort ástæða sé til þess að hringja á sjúkrabíl og fara þannig til Landspítala.Áfram verður rekin öflug dag- og göngudeildaþjónusta hjá Hjartagátt við Hringbraut. Það er einungis bráðaþjónustan sem flytur 30. nóvember og verður í fullri virkni í Fossvogi frá og með 1. desember.

Posted by Landspítali on Fimmtudagur, 22. nóvember 2018

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-