-Auglýsing-

Aðstæður á hjartadeild LSH ömurlegar

HjartadeildÞað var ekki laust við að maður yrði heldur dapur við að horfa á fréttirnar í kvöld þar sem lýst var aðstæðum á hjartadeild LSH.

Það er orðið alvarlegt þegar læknar tala um tímaspursmál hvenær mistök eigi sér stað. Ég vil þó benda á að mistök eiga sér stað þó svo að svona hörmungarástand ríki ekki, þau verða kannski fleiri.

-Auglýsing-

Það breytir hinsvegar ekki þeirri staðreynd að þær aðstæður sem starfsfólki og sjúklingum er boðið upp á í dag eru ekki boðlegar

Ég get ekki varist þeirri tilhugsun að stjórnmálamenn hafi kannski glatað góðu tækifæri til að blása starfsfólki Landspítalans í brjóst þegar þeir kynntu fjárlagafrumvarpið fyrir stuttu síðan.

Ég held að meirihluti þjóðarinnar hefði með glöðu geði séð á bak tekjuskattslækkun og aurarnir sem út úr því hefðu komið yrðu settir í heilbrigðismálin.

Satt best að segja hugnast mér ekki söngur heilbrigðisráðherra þegar hann staglast á mikilægi þess að skila hallalausum fjárlögum, hvað sem það kostar.

- Auglýsing-

Það vill svo til að mannslíf kosta líka peninga en það skiptir stjórnmálamenn kannski minna máli en fjárlagagat.

Hér má sjá umfjöllun um hjartadeildina í fréttatíma RÚV í heild sinni  

Hér er hægt að sjá viðtalið við heilbrigðisráðherra

Skylt efni :

Hin breiðu bök og skömm stjórnmálamanna

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-