-Auglýsing-

Berjaát og hjartaheilsa kvenna

Berjagirningur. Mynd/Þórður Kristinn SigurðssonMeðal annarra innihalda jarðaber, bláber, eggaldin, lárperur anthocyanin sem virðist hafa góð áhrif á hjartaheilsu kvenna samkvæmt því sem rannsóknir segja.  

Þetta á þó ekki síst við konur en það segir frá því á mataraedi.is.

Þar segir frá því að vísindamenn við Harvard háskólann í Boston birtu í janúar síðastliðnum niðurstöður rannsóknar þar sem þeir fylgdu eftir 93.600 konunum á aldrinum 25-42 ára í 18 ár.

Konurnar svöruðu spurningalista um mataræði á 4 ára fresti. Alls fengu 405 þessara kvenna hjartaáfall (kransæðastíflu) á tímabilinu. Tíðni þessara áfalla var 32 prósent lægri meðal kvenna sem borðuðu mikið af efnum sem kallast anthocyanin. Þessi efni er að finna í ríkulegu magni í bláberjum og jarðarberjum. Anthocyanin má einnig finna í eggaldin, greip, lárperum, mangó, ólífum, rauðlauk og sætum kartöflu .

Talið er að anthocyanin geti víkkað út slagæðar og dregið úr þrengslamyndun í æðum. Eldri rannsóknir hafa sýnt að neysla bláberja getur dregið úr líkum á háum blóðþrýstingi.

Að því er fram kemur hjá Axel á mataæði.is sýnir Þessi rannsókn, eins og fjölmargar aðrar tengsl á milli mataræðis og sjúkdóma, en sannar ekki að orsakasamband sé til staðar. Hugsanlegt er að konurnar sem borðuðu mikið af berjum hafi hreinlega haft almennt heilbrigðari lífsstíl en hinar.

- Auglýsing-

Vísindamennirnir benda þó á að fæða sem inniheldur anthocyanin sé líklega mikilvægur þáttur í hollu mataræði, sem helst eigi að innihalda mikið magn af ávöxtum, grænmeti og heilkorni.

Það væri fróðlegt að vita hver útkoman væri ef sambærileg rannsókn yrði gerð á körlum en hvað sem því líður eru berin frábær viðbót við matarflóru okkar hér á Íslandi með slettu af rjóma og algjörlega ómissandi í boozt.

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-