-Auglýsing-

200–250 manns bíða eftir hjartaþræðingu

Á ÞRIÐJA hundrað manns bíður nú eftir hjartaþræðingu á hjartadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss og hafa biðlistar eftir hjartaþræðingu verið með svipuðum hætti undanfarin ár. Það getur þýtt 5–6 mánaða bið eftir hjartaþræðingu nema um bráðatilvik sé að ræða og segir Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartadeild LSH, þetta ástand óviðunandi.

Gestur sagði að undanfarið hefðu á bilinu 200–250 manns verið á biðlista eftir hjartaþræðingu lengst af og þannig hefði það verið síðustu árin. Fyrir nokkrum árum hefði biðlistinn verið orðinn mjög stuttur, en þá hefði verið brugðið á það ráð að stöðva þræðingar að sumri til vegna skorts á aðstöðu og starfsfólki. Þá hefði listinn lengst aftur og ekki náðst niður að ráði síðan.

Gestur sagði aðspurður að það væri mjög óþægilegt fyrir fólk að þurfa að bíða lengi eftir hjartaþræðingu “og þetta er ekki alveg hættulaus biðlisti eðli málsins samkvæmt”. Aðspurður hvað væri til ráða sagði Gestur að legurými hefði sett þeim skorður síðustu árin. Þeim þyrfti að fjölga sem og starfsfólki en til þessa þyrfti aukið fjármagn.

“Okkur finnst þetta óviðunandi með öllu,” sagði Gestur aðspurður. “Það væri hægt að efla starfsemina með því að taka meira húsnæði undir þetta fyrir þá sjúklinga sem þurfa að fara í hjartaþræðingu og síðan með því að setja fé í að halda uppi þessari starfsemi um helgar ef það er hægt að fá mannskap í það.”

Eftir Hjálmar Jónsson

hjalmar@mbl.is
 
Morgunblaðið 10.04.2007

- Auglýsing-

 

 

-Auglýsing-
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-