-Auglýsing-

Kjúklingabringur með villisveppasósu

Kjúklingabringur fæast í ýmsum útfærslum, ferskar, fulleldaðar og kryddaðar.

Uppskrift vikunnar frá Holtakjúklingi kemur úr smiðju Úlfars Finnbjörnssonar og er klassísk úr safni Holtakjúklings.

Steiktar kjúklingabringur með villisveppasósu.

-Auglýsing-

Fyrir 4

- Auglýsing-

800 g kjúklingabringur frá Holta
4 msk. olía
Salt og nýmalaður pipar
300 g villisveppir, t.d. furusveppir eða lerkisveppir, skornir í báta eða 40 g þurrkaðir sveppir lagðir í volgt vatn í 20 mínútur.
1 dl púrtvín
½ dl koníak eða brandí
¾ msk. nautakjötskraftur
2 ½ dl rjómi
Sósujafnari

Kryddið bringurnar með salti og pipar og steikið í 2 msk. af olíu í tvær mínútur á hvorri hlið eða þar til bringurnar eru orðnar gullinbrúnar.

Setjið þá bringurnar í ofnskúffu og bakið við 180°C í 10-12 mínútur eða þar til kjarnhiti sýnir 70°C. Steikið sveppina á sömu pönnu í 2 msk. af olíu í tvær mínútur.

- Auglýsing -

Kryddið með salti og pipar. Bætið púrtvíni og brandíi á pönnuna og sjóðið niður í síróp. Þá er rjómanum og kjötkrafti bætt á pönnuna og látið sjóða í 1-2 mínútur. Þykkið sósuna með sósujafnara.

Berið bringurnar fram með villisveppasósunni og t.d. steiktum kartöflum og grænmeti.

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-