Hægt er að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.
Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís, segir í fréttatilkynningu að hægt sé að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti.
-Auglýsing-
„Frá manneldissjónarmiði er mikilvægt að auka magn trefjaefna í fæði Íslendinga. Það er sérstaklega áhugavert að í bygginu eru vatnsleysanleg trefjaefni sem kallast beta-glúkanar. Þessi trefjaefni geta lækkað kólesteról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.”
www.mbl.is 12.02.2008
-Auglýsing-