Tvítugur þýskur handknattleiksmaður, Sebastian Faisst frá Dormagen, lést í gærkvöldi í landsleik U-21 árs liðs Þýskalands og Sviss. Hann var í hraðaupphlaupi á 34. mínútu er hann hné niður og lífgunartilraunir bráðaliða á staðnum báru ekki árangur.
Talið er að um hjartaáfall hafi verið að ræða. Faisst hefði orðið 21 árs á laugardaginn og hefur átt sæti í 1. deildarliði Dormagen.
-Auglýsing-
www.mbl.is 04.03.2009
-Auglýsing-