-Auglýsing-

Vilja fara að sjá árangur

Mikill hiti kominn í hjúkrunarfræðinga sem þrýsta á um að ná samningum og íhuga að hætta að taka aukavaktir en það mundi hafa alvarlegar afleiðingar.

Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR þrýsta mjög á um að ná samningum við ríkið hið fyrsta, enda er mikill hiti kominn í hjúkrunarfræðinga í kjaraviðræðum þeirra. Síðasta samningafundi hjá ríkissáttasemjara sl. föstudag lauk eftir 20 mínútna árangurslausar viðræður. Næsti fundur hjá sáttasemjara er í dag, miðvikudag. Að honum loknum reiknar stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) með því að funda og taka fyrir áskorun trúnaðarmanna félagsins um undirbúning formlegra aðgerða af hálfu félagsins. Í lok maí sl. fóru trúnaðarmenn FÍH þess á leit við stjórn félagsins að hafinn yrði formlegur undirbúningur að yfirvinnustöðvun og tímabundnum vinnustöðvunum.

Að sögn Elsu B. Friðfinnsdóttur formanns FÍH vilja félagsmenn fara að sjá árangur af samningaviðræðum.

Ákveði hjúkrunarfræðingar að hætta að taka aukavaktir munu aðgerðirnar bitna mest á starfsemi Landspítalans en á sumum deildum spítalans eru aukavaktir töluvert hátt hlutfall af vinnu hjúkrunarfræðinga. Elsa bendir á að á hverjum sólarhring þurfi að manna 100 aukavaktir á Landspítalanum. Segir Elsa að áhrifin af mögulegum aðgerðum hjúkrunarfræðinga yrðu mjög alvarleg. „Ég reikna með að það þyrfti að fresta þeim aðgerðum sem mögulega er hægt að fresta og miða eingöngu við að sinna bráðaaðgerðum.“

Í hnotskurn

» Á hverjum sólarhring þarf að manna um 100 aukavaktir á Landspítalanum.
» Niðurstaða af fundi hjúkrunarfræðinga hjá ríkissáttasemjara í dag mun að einhverju leyti ráða næstu skrefum þeirra og hvort þeir hætti að taka aukavaktir.

Morgunblaðið 04.06.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-