Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson er hér með helgaruppskrift af dásemdarinnar kjúklingalærum Adodo.
Einnig minni ég á uppskriftavef Holta hér til hliðar á síðunni þar sem allir geta fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi fyrir helgina.
Fyrir 4
- 2 msk. olía
- 8 kjúklingalæri
- 4 laukar, skornir í sneiðar
- 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
- 3 lárviðarlauf
- ½ dl eplaedik
- 1 dl sojasósa
- 1½ dl kjúklingasoð eða vatn og kraftur
- Salt og nýmalaður pipar
- 1-2 msk. hlynsíróp (maple), má sleppa
Hitið olíuna í vokpönnu eða stórum potti og steikið lærin í 2 mínútur á hvorri hlið. Kryddið með salti og pipar. Takið þá lærin af pönnunni og steikið laukinn og hvítlaukinn í 2 mínútur. Leggið þá lærin ofan á laukinn og bætið lárviðarlaufum á pönnuna. Þá er eplaediki, sojasósu og soði bætt á pönnuna og soðið með loki við vægan hita í 20 mínútur. Takið þá lokið af og sjóðið í 3-4 mínútur eða þar til nánast allur vökvinn er soðinn niður. Ef þið viljið hafa réttinn sætari þá er sírópinu bætt saman við. Berið fram með hrísgrjónum og brauði.