-Auglýsing-

Notaðu sumarið til breyta venjum

Hjólreiðar á rafmagnshjóli er frábær leið fyrir þá sem eru með skerta getu af einhverjum orsökum.

Það eru ýmiskonar þættir sem hafa áhrif á þróun hjartasjúkdóma og hægt er að hafa bein áhrif á bæði samfélagslega og persónulega þætti hjá hverjum og einum. Lífsstíll spilar þar stærstan hluta og með heilbrigðari lífsstíl er hægt að koma í veg fyrir ótrúlega mikla þjáningu, ekki bara vegna hjartasjúkdóma heldur vegna ýmiskonar sjúkdóma sem lífsstíll hefur áhrif á.

Sumarið er tími breyttra venja. Við notum grillið meira, ferðumst meira, erum meira úti og rútínan verður önnur. Sumarið er því góður tími til að byggja upp og byrja að móta nýjar venjur þegar kemur að lífsstíl, mataræði og hreyfingu. Það er magnað hvað lítið getur breytt miklu. Hér á eftir koma ráðleggingar um hreyfingu fyrir heilbrigðara hjarta.

-Auglýsing-

Sumarhreyfingin, byrjaðu smátt

Hugsaðu um að fá hreyfingu í daglegum venjum og náðu hjartslættinum upp þegar þú getur. Allt telur þegar hreyfing er reiknuð saman.

  1. Taktu stigann þegar þú getur. Byrjaðu á að labba alltaf ef þarft að fara eina hæð, svo tvær og svo þrjár.
  2. Leggðu bílnum lengra frá búðinni og lengra frá vinnunni.
  3. Farðu í göngutúr með hundinn hvort sem þú átt hund eða ekki. Konur sem ganga að minnsta kosti eina klukkustund í viku eru í 50% minni hættu á að fá hjartasjúkdóma.
  4. Auktu hraðann, það lækkar blóðþrýsting. Fólk sem breytir gönguhraða sínum úr hægum í hraðan í að minnsta kosti klukkutíma á dag minnka líkur sínar á því að deyja af völdu hjartasjúkdóms um 50%. Ef þú telur með allt sem þú gengur allan daginn alla daga þá telur þetta fljótt.
  5. Flýttu þér við skylduverkin, taktu tímann. Skúraðu gólfin t.d. á meiri hraða en síðast, ryksugaðu húsið, þrífðu bílinn og sláðu garðinn og skráðu tímann. Þú þarft að gera þetta hvort eð er og getur þá alveg eins nýtt þetta sem líkamsrækt. Þú gerir marga hluti í viku hverri sem fá nýjan tilgang þegar þeir fá hjartað til að slá hraðar með því að gefa aðeins í. Kepptu við sjálfa/n þig, bættu heilsuna og minnkaðu tímann sem fer í húsverkin í leiðinni.
  6. Notaðu skrefateljara. Það að nota skrefateljara hjálpar þér við að fylgjast með hversu mikið þú gengur á hverjum degi. Það getur hjálpað þér að margfalda daglega virkni þína.
  7. Hjólaðu á hverjum degi. Þeir sem hjóla t.d. til og frá vinnu eru í 28% minni líkum á að deyja fyrir aldur fram. Að auki getur það hækkað góða kólesterólið þitt um 15% á bara einu ári.
  8. Hoppaðu á hjólið einu sinni í viku og gefðu í botn í 15 mínútur. Það getur aukið þol þitt um 20% á bara þrem mánuðum. Fyrir flesta er þetta ekki meira en ein rösk ferð í búðina einu sinni í viku.
  9. Stattu oftar upp í vinnunni.
  10. Þegar þú gleymir að kaupa bara einn hlut í búðinni, farðu þá aftur út, en þá gangandi eða á hjólinu. Nú gildir engin afsökun um þunga eða marga poka.
  11. Finndu fleiri punkta. Það er endalaust hægt að bæta við 🙂

Byrjaðu smátt, veldu þér eitthvað eitt sem þú getur breytt núna, svo annað í næstu viku. Ekki gleyma hvar þú býrð! Ef þú vilt mynda þér varanlegan vana þá þýðir það að þú ætlar þér sem sagt líka að hreyfa þig þegar það er kominn vetur. Nýttu  þá birtuna, hitann og gleðina sem býr í sumrinu til þess að taka fyrstu skrefin sem alltaf eru erfiðust. Ef vaninn er orðinn til og hreyfing orðin nauðsynlegur hluti í þínu daglegu lífi þá ertu mun líklegri til að fara líka af stað þegar vetur bylur á gluggum og kalt er úti 🙂

- Auglýsing-

Mjöll Jónsdóttir
Sálfræðingur
mjoll@salfraedistofan.is

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Mjöll Jónsdóttir
Mjöll Jónsdóttirhttps://www.salfraedistofan.is/um-okkur/starfsfolk/mjoll-jonsdottir/
Mjöll lauk B.A. námi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og Cand. Psych. prófi frá Háskólanum í Árósum árið 2012. Mjöll hefur sótt námskeið og fyrirlestra á sviði áfallameðferðar og heilsusálfræði ásamt því að sækja ráðstefnur um sitt sérsvið. Mjöll starfar hjá Sálfræðistofunni Höfðabakka 9

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-