Ísland er í 3ja sæti þegar borin er saman heilbrigðisþjónusta í 34 Evrópulöndum og er eina landið sem hlýtur hæstu einkunn fyrir árangur meðferðar í öllum sjúkdómaflokkum sem skoðaðir voru.
Í dag, 28. nóvember 2013, birti Health Consumer Powerhouse niðurstöður sínar á samanburði gæða heilbrigðisþjónustunnar í 34 Evrópulöndum og notar til þess 42 gagnreynda mælikvarða. Niðurstöðurnar Euro Health Consumer Index 2013 http://www.healthpowerhouse.com/files/ehci-2013/ehci-2013-is.pdf voru birtar í dag.
Þar kemur fram sú ánægjulega niðurstaða að Ísland lendir í 3ja sæti, hlýtur bronsverðlaunin eins og segir í skýrslunni. Í greinargerð um þennan árangur er vakin athygli á að þrátt fyrir gríðarlegar efnahagsþrengingar hafi Íslandi tekist að halda óbreyttum gæðum heilbrigðisþjónustu og haldið 3ja sætinu öll árin sem landið hefur verið með í samanburðinum.
Og Ísland gerir raunar gott betur því að Ísland er hið eina af þessum 34 Evrópulöndum sem kemst í hæsta stigaflokk þegar borinn er saman árangur meðferðar tíu sjúkdóma.
Niðurstöðurnar eru ánægjulegt innlegg í umræðuna um íslenska heilbrigðisþjónustu sem að undanförnu hefur óneitanlega einkennst af lítilli bjartsýni.
Af vef Landlæknis