Að flýta klukkunni til að nýta dagsbirtuna betur, gæti orsakað örlitla aukningu í hjartaáföllum daginn eftir, að því er fram kemur í lítilli bandarískri rannsókn. Svefnskortur er talinn líklegasta ástæðan.
Vísindamenn við tvö sjúkrahús í Michigan fóru yfir sjúkraskýrslur sex ár aftur í tímann og komust að því að á sunnudeginum eftir hina árlegu breytingu á klukkunni komu 23 sjúklingar að meðaltali til meðferðar á sjúkrahúsin vegna hjartaáfalls. Meðaltal annarra sunnudaga var 13 sjúklingar.
Vísindamennirnir benda á að margar rannsóknir sýni að skortur á svefni geti haft slæm áhrif á heilsu fólks. Þeir vilja þó að fólk fari varlega í að draga ályktanir út frá rannsókninni.
Hjartalæknir segir við Reuters-fréttastofuna að hingað til hafi ekki verið talið að klukkustundar minni svefn auki líkur á hjartaáfalli.
Þetta er þó ekki fyrsta rannsóknin sem finnur þessi tengsl. Árið 2008 kom út rannsókn í Svíþjóð sem sýndi að fyrstu þrjá dagana eftir að klukkunni var breytt á hverju hausti voru fleiri tilfelli hjartaáfalls greind.
www.mbl.is 16.12.2012