HIV-smitaðir eru í um fimmtíu prósent meiri hættu á að fá hjartaáföll, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem kynnt var í dag. Niðurstaðan er í samræmi við aðrar úr eldri rannsóknum og þykir renna traustari stoðum undir staðhæfinguna.
Alls tóku rúmlega 82 þúsund fyrrverandi hermenn þátt í rannsókninni, og mikill meirihluti þeirra karlmenn. Í ljós kom að HIV-smitaðir voru í miklu meiri áhættu á að fá hjartaáföll en þeir sem ekki eru smitaðir af veirunni.
-Auglýsing-
Þetta er sama niðurstaða og kynnt var í annarri rannsókn í júlí í fyrra. Talið er að bólgur í slagæðum séu helsta orsökin.
www.mbl.is 04.03.1013
-Auglýsing-