Í þarsíðustu viku bilaði eitt af þremur hjartaþræðingartækjum á hjartaþræðingardeild Landspítalans þegar sjúklingur var í aðgerð.
Skipta þurfti um varahlut í tækinu og var það gert næsta dag en sjúklingurinn var færður yfir í aðra stofu þar sem aðgerðinni var haldið áfram með öðru tæki.
Sjúklingurinn sem um ræðir var í aðgerð þegar tækið bilaði og lést en þó er ekki talið að bilun tækisins hafi valdið dauða sjúklingsins. Þegar bilunin kom upp var hann færður yfir í annað tæki. „Vissulega er þetta þó bagalegt,“ segir læknir á spítalanum. Einn viðmælenda DV segir það tímaspursmál hvenær tæki klikki á ögurstundu. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sem rætt hefur verið við er orðið langþreytt á ástandinu.
-Auglýsing-
www.dv.is 24.010.2012
-Auglýsing-