Bandaríski poppkóngurinn, Michael Jackson, lést í gær fimmtugur að aldri af völdum hjartaáfalls. Að sögn bandarískra fjölmiðla komu bráðaliðar á heimili söngvarans í Los Angeles og hafði hjarta hans stöðvast. Jackson var endurlífgaður en fluttur á spítala í dái. Hann var úrskurðaður látinn um klukkan þrjú að staðartíma.
Morgunblaðið 26.06.2009
-Auglýsing-