-Auglýsing-

Áhyggjur af sameiningu

HJARTAHEILL, samtök hjartasjúklinga, hafa ekki fengið kynningu á áformum Landspítalans um að sameina bráðamóttöku spítalans á einn stað í Fossvogi. Formaður Hjartaheilla, Guðmundur Bjarnason, segir það miður að ekki hafi verið leitað álits samtakanna og óttast hann að öryggi hjartasjúklinga sé teflt í tvísýnu.

„Það skiptir hjartasjúklinga afar miklu máli að gott samband sé á milli bráðamóttökunnar og hjartadeildarinnar, sem hefur verið í mikilli uppbyggingu, ekki síst fyrir tilstilli Hjartaheilla þegar safnað var fyrir nýju hjartaþræðingartæki og sett upp stórbætt aðstaða fyrir móttöku bráðasjúklinga. Það skiptir hver mínúta máli ef menn eru í bráðri þörf fyrir skoðun eða þræðingu,“ segir Guðmundur.

-Auglýsing-

Hann segir Hjartaheill ekki leggjast gegn hugmyndum um hagræðingu en erfitt sé að sjá sparnað í því ef slíta eigi samskiptin milli bráðamóttökunnar og hjartadeildarinnar við Hringbrautina. Ekki sé mikið hagræði í því ef líka eigi að flytja hjartadeildina í Fossvoginn.

Bæði læknaráð og hjúkrunarráð Landspítalans hafa ályktað um málið og hvatt stjórn spítalans til að endurskoða áform sín um samruna á bráðamótttökum. Er rekstrarlegt hagræði af sameiningunni dregið í efa og m.a. bent á að skoða tillögur um nýja byggingu við Hringbraut.

- Auglýsing-

bjb@mbl.is

Morgunblaðið 06.05.2009 

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-