Áætlað er að Nói og síríus framleiði tíu milljón konfektmola fyrir jól. Og þá eru allir hinir konfektframleiðendurnir ótaldir.
Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í næringarfræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands var í sínu vikulega spjalli á Rás 2 í síðustu viku, segir annað bragð af súkkulaði með sem borðað er með samviskubiti en þess sem notið er í hófi.
Konfektmolarnir eru út um allt á aðventunni: á heimilinu, í vinnunni, í búðinni, bankanum og víðar. Það er freistandi að fá sér mola og mola en fyrr en varir er maður jafnvel búinn að borða ráðlagðan vikuskammt á einum degi. Anna Sigga segir um að gera að njóta þess að fá sér konfektmola yfir hátíðarnar en fá sér í hófi og velja bara molana sem manni þykir bestir. Þá hreinlega smakkist konfektið betur.
Hér má heyra viðtalið í heild sinni.