Frábæru lesendur, í kvöld gerðist sá merki atburður að við fengum læk númer 5.000 hér á hjartalif.is og fyrir það erum við ótrúlega þakklát.
Þið eruð drifkrafturinn sem hvetur okkur áfram í þessu starfi og án ykkar værum við bæði fámenn og smá.
Við Mjöll erum ótrúlega lánsöm að hafa átt í samstarfi við fjölmarga aðila sem hafa leyft okkur að birta efnið sitt hér á hjartalif.is og þetta fólk á ekki síst þátt í því að við höfum getað haldið þessari síðu úti í átta og hálft ár.
Þetta er hugsjónastarf og við erum drifinn áfram að þeirri staðreynd að á hverju ári deyja um 700 Íslendingar úr hjarta og æðasjúkdómum, eða um 40% þeirra sem látast á Íslandi á hverju ári.
Á síðustu áratugum hefur orðið algjör bylting í meðferð hjarta og æðasjúkóma og sem betur fer eru alltaf fleiri og fleiri sem lifa af, lifa með sjúkdómnum og eiga gott hjartalíf í áratugi.
Við viljum vera til staðar fyrir þetta fólk, maka þeirra og aðstandendur og alla þá sem láta sig málefni hjartans varða.
Þið lesendur sem hafið lækað á síðuna okkar, stutt okkur með því að koma hér inn og fylgjast með því sem við erum að gera, þúsund þakkir.
Björn & Mjöll