Hulda Gunnlaugsdóttir tók við starfi forstjóra Landspítala í dag, þriðjudaginn 21. október 2008. Hún hefur verið forstjóri Akers háskólasjúkrahússins í Osló en var ráðin til Landspítala frá 1. september síðastliðinn. Síðan hefur Hulda verið að ljúka verkefnum í sínu fyrra starfi en á meðan var Björn Zoëga framkvæmdastjóri lækninga settur forstjóri Landspítala.
Fyrsta verk nýja forstjórans var að taka þátt í vikulegum þriðjudagsfundi framkvæmdastjórnar Landspítala.
-Auglýsing-
www.landspitali.is 21.10.2008
-Auglýsing-