Það er orðið ansi langt síðan bárust góðar fréttir af Landspítalanum og ekki batnar það. Grafalvarleg staða er uppi á lyflækningadeild og samkvænt þessari frétt Morgunblaðsins vantar tugi lækna til starfa og maður spyr sig að því hvort öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu.
Nýtt skipulag verður virkjað á Landspítalanum frá og með mánaðamótum, vegna gríðarlegrar manneklu á stærsta sviði spítalans, lyflækningasviði. Deildarlæknir segir að staðan hafi lengi verið fyrirsjáanleg og læknar talað fyrir daufum eyrum stjórnenda spítalans í mörg ár.
„Vandamálið er ekki að við fáum ekki pening til að greiða fyrir stöðurnar, heldur að fólk getur ekki hugsað sér að vinna við þessar aðstæður,“ segir Hrönn Ólafsdóttir, deildarlæknir á lyflækningasviði á meðstjórnandi í Félagi almennra lækna.
„Álagið er svo gríðarlegt að fólk er bara búið að fá nóg. Það er svo augljóst, því það sækir enginn um þessar stöður.“
5-6 læknar í stað 25
Gert er ráð fyrir stöðum 25 deildarlækna á lyflækningasviði Landspítalans. Þeir eru hins vegar rétt um tugur talsins og heldur áfram að fækka í haust. Læknanemar hafa létt mikið undir í sumar en um mánaðamótin hætta þeir störfum þegar skólinn hefst að nýju. Í haust verður bæði skortur á deildarlæknum og kandídötum á lyflækningasviði.
„Eins og staðan er í dag þá sjáum við fram á áframhaldandi vandamál eftir því sem líður á haustið því það fækkar áfram í hópnum, nema nýir komi inn sem er ekki útlit fyrir,“ segir Hrönn. Fari sem horfir verða aðeins 5-6 læknar sem unnið geta fulla vinnu með vöktum á lyflækningasviði í október, þar sem gert er ráð fyrir 25 læknum.
Hrönn bendir á að lyflækningasviði sé ákveðið framhaldsmenntunarprógramm í gangi. Framtíð þess sé teflt í tvísýnu verði þróunin áfram með þessu móti vegna manneklu og álags.
Kemur í ljós hvort þetta gengur upp
Lengi hefur hallað undan fæti á lyflækningasviði en ljóst var að stefndi í óefni þegar fjöldi deildalækna sagði upp á sviðinu í febrúar. Þá var haldinn samráðsfundur um hvað hægt væri að gera til að halda í starfsfólk og skipaður hópur almennra lækna og sérfræðilækna til að koma með tillögur að úrbætum.
Tillögum var skilað í maí en að sögn Hrannar, sem sat í hópnum, bar lítið á framkvæmdum.
„Okkar hlutverk var að koma með hugmyndir að breytingum sem væri þá á höndum framkvæmdastjórnar LSH að bregðast við.“ Hún segir að nýta hefði mátt tímann betur í sumar til að gera áætlun fyrir haustið sem tæki mið af bágri mönnun og augljósri þörf á skipulagsbreytingum á sviðinu. „En svo gerðist lítið í sumar og nú á að reyna að leysa þetta kortér í mánaðamót.“
Læknaráð Landspítala lýsti í byrjun sumars yfir þungum áhyggjum yfir bágri mönnum almennra lækna á lyflækningasviði. Nú hefur verið brugðist við með n.k. neyðaráætlun þar sem skipulagið á lyflækningasviðinu er stokkað upp til að mæta manneklunni.
„Það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta gengur því það er ekki bara verið að breyta okkar vinnulagi. Breytingar á vinnuskipulagi almennra lækna og sérfræðilækna á lyflækningasviði hefur áhrif á önnur svið, til að mynda bráðasvið og því mikilvægt að undirbúningurinn sé góður. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig þetta mun ganga eftir helgi og á næstu misserum ef almennum læknum á sviðinu fer ekki að fjölga.“