Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holtakjúklingi fyrir áhorfendur.
Þættinir eru auk þess aðgengilegir á Hjarta TV hér á hjartalif.is auk þess sem hægt er að fara beint í uppskriftarsafn Holta hér.
Í uppskrift vikunnar frá Holta-kjúklingi færir Úlfar lesendum uppskrift að marineruðum kjúklingaleggjum með wok-grænmeti og ljúffengri sósu.
Kjúklingur
1 kg úrbeinuð kjúklingalæri
Marinering á kjúkling
1 bolli soyasósa
1 bolli appelsínusafi
1 bolli olía
1 stk. bird eye chili
25 g rifið engifer
½ hvítlauksgeiri, rifinn niður
2 msk. ristuð og mulin coriander-fræ
Öllu blandað saman og sett á kjúklinginn. Hann er látinn marinerast í sólarhring og síðan grillaður.
Sósa
500 ml jógúrt
30 g hunang
100 g salthnetu-paste
börkur af einu lime
1 geiri hvítlaukur, rifinn niður
15 g engifer, rifið niður
Kóríander, saxaður
1 sítrónugras, rifið niður
1 stk. bird eye chili, saxað smátt
Salt
Lime-safi
Öllu blandað saman og smakkað til.
Dressing á wok-grænmeti:
2 bollar appelsínusafi
2 bollar olía
1 bolli soyasósa
1 msk. chili-flögur
Söxuð minta
Öllu blandað saman
Rótargrænmetissalat:
1 kínahreðka
1 sæt kartafla
Grasker
1 stk. butternut-grasker
Graskerið skorið í báta og grillað þangað til rendur eru komnar í graskerið. Klárað að elda á 160°C í 5 mín. eða þangað til eldað í gegn. Grænmetisdressing er hellt yfir og kryddað með salti og pipar.