Það er fátt skemmtilegra en að læra nýjar aðferðir við matreiðslu og fá nýjar hugmyndir í matargerð. Það stefnir í þurrviðri hér sunnanlands um helgina með hæfilega passlegu grillveðri og víst að ekki verður vöntun á eðaltilboðum í mörgum verslunum svo ekki er úr vegi að prófa eitthvað skemmtilegt.
Lambakjötið er okkur hjartfólgið hér á hjartalif.is enda um hreina náttúruafurð að ræða en í þessum þætti frá Kjarnafæði útbýr Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari kryddjurtafylltan lambahrygg á teini. Uppskriftin er svo hér fyrir neðan myndskeiðið.
Kryddjurtafylltur lambahryggur á teini
Fyrir 4-6
1 úrbeinaður lambahryggur með lundum
Salt og nýmalaður pipar
Fylling
1 lúka dvergbasil eða venjulegt, gróft saxað
1 lúka sítrónutimjan eða venjulegt, gróft saxað
2 msk rósmarínnálar, gróft saxaðar
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
Fínt rifinn börkur af ¾ sítrónu
Kryddið hrygginn að innan og utan ásamt lundunum með salti og pipar. Leggið helminginn af kryddjurtunum og sítrónuberkinum innan í hrygginn og leggið lundirnar eftir endilöngu. Þá er restin af kryddjurtunum og sítrónuberkinum sett ofan á lundirnar. Mótið rúllu úr hryggnum og vefjið hreinum blómavír þétt utan um hrygginn. Þræðið hrygginn upp á grilltein og grillið á milliheitu grilli í 1 klst. með snúningi. Ef þið eigið ekki grill með snúningsteini þá má setja hrygginn á álgrillbakka á mitt grillið og kveikja á grillinu sitthvorumegin við hrygginn og grilla í 1 klst. Snúið hryggnum reglulega.
Takið vírinn af hryggnum og berið fram með t.d. kaldri hvítlaukssósu, grilluðu grænmeti, kartöflum og salati.