Smásöluverð á lyfjum var í 12 tilvikum hæst hér á landi í nýjasta samanburði Lyfjagreiðslunefndar milli Norðurlandanna. Borið var saman verð í júní á þeim 33 lyfjum sem Tryggingastofnun ber mestan kostnað af. Mestu munaði í verði á blóðfitulækkandi lyfinu Sivacor, sem er ætlað hjartasjúklingum, en það var ríflega þrisvar sinnum dýrara hér en í Noregi.
Hér kostar það 3455 en í Noregi kostar lyfið 989 krónur. Flest samanburðarlyfjanna voru jafnframt ódýrust í Noregi, eða alls 24. Í Danmörku voru flest lyfin dýrust, alls 15, eða litlu fleiri en hér á landi.
-Auglýsing-
www.ruv.is 20.06.2008
-Auglýsing-