Á dögunum var tekinn í notkun upphringibúnaður við hjartasuðtæki í sjúkrabílnum á Fáskrúðsfirði. Búnaðurinn er gjöf frá Loðnuvinnslunni hf.
Bíllinn á Fáskrúðsfirði er sá fyrsti á Austurlandi sem hefur slíkan búnað en búnaðurinn gerir sjúkraflutningamönnum kleyft að senda hjartalínurit og upplýsingar um ástand sjúklings samstundis úr bílnum til Hjartagáttarinnar á Landspítalanum og til vakthafandi læknis hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands.
Þetta gerist um leið og línuritið er tekið í sjúkrabílnum og með því geta vakthafandi læknar strax metið ástand sjúklings í sjúkrabílnum áður en hann kemur á heilbrigðisstofnun, undirbúið móttöku hans og gefið fyrirmæli um meðferð á meðan á flutningi stendur.
Þessi búnaður er ekki staðalbúnaður í sjúkrabílum á Íslandi, en er kominn í bíla á nokkrum stöðum á landinu en búnaðurinn eykur mjög á öryggi sjúklinga og bætir starfsaðstöðu sjúkraflutningamanna.
Á Austurlandi taka sjúkraflutningar að jafnaði lengri en í stærri byggðarlögum vegna vegalengda.
Í flestum tilfellum er áfangastaður hjartasjúklinga á Austurlandi Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað eða Landspítalinn í Reykjavík.
Sagt er frá þessu á vef Loðnuvinnslunnar.
Myndion er af vefnum sjukrabill.is