Nærri helmingur Bandaríkjamanna þjáist af of háum blóðþrýstingi eða of háu kólestrólmagni í blóði. Eykur það líkurnar á hjartaáfalli til muna en margir vita ekki einum sinni af því að þeir þjást af slíkum kvilla að því er fram kemur í bandaríska dagblaðinu LA Times.
Niðurstaðan er fengin úr heilbrigðis- og næringarkönnun sem bandarísku hjartasamtökin létu framkvæma. Kom í ljós að þeldökkir Bandaríkjamenn eru líklegastir til að þjást af of háum blóðþrýstingi á meðan hvítir Bandaríkjamenn eru líklegri til að þjást af of háu kólestróli. Þá er fólk af mexíkóskum uppruna í Bandaríkjunum líklegast til að þjást af sykursýki.
-Auglýsing-
www.dv.is 28.04.2010
-Auglýsing-